Ađ deyfa ţor fréttamanna

Minn gamli yfirmađur, Össur Skarphéđinsson, sagđi á heimasíđu sinni ađ ummćli Páls Magnússonar deyfđu ţor fréttamanna RÚV til ađ fjalla um málefni Ríkisútvarpsins. Í síđdegisútvarpinu tók hann dćmi af ungum fréttamanni sem vćri ađ stíga sín fyrstu spor og framtíđ hans vćri í hendi Páls Magnússonar.

Ég er ekki viss um ađ ég myndi teljast í ţessum hópi. Ég er ekki ađ stíga mín fyrstu spor í fréttamennsku ţó ađ ég sé ađ gera ţađ hjá RÚV. En ég hef aldrei upplifađ stöđu mína ţannig ađ framtíđ mín sé í hendi Páls Magnússonar. Ég hef fyrst og fremst litiđ svo á ađ framtíđ mín hjá RÚV sé fyrst og fremst í mínum höndum. Ef ég skila góđu starfi verđ ég ţar áfram, annars ekki. Og sú stađa breytist ekkert ţó ađ Páll Magnússon segi sínar skođanir á RÚV-frumvarpinu. Ţađ hefur hann gert áđur og ţađ hefur ekki haft nein áhrif á mig ţegar ég hef ţurft ađ fjalla um ţetta mál.

Mér finnst ekki gott til ţess ađ vita ađ Össur, sem ég hef miklar mćtur á eftir ađ hafa unniđ međ honum á DV, hafi ekki meira álit á fréttamönnum Ríkisútvarpsins en ţetta. Hann sagđist reyndar hafa mikiđ álit á Fréttastofu Útvarpsins og er ţađ ţakkarvert. En skođanir Páls Magnússonar draga ekki úr mínu ţori!


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Hallgrímur Indriðason
Hallgrímur Indriðason
Fjölmiđla- og íţróttafíkill.
Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 570

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband